HOMO CONSUMUS

sysifuss var ekki af því tagi

sem tíminn kastar af sér eins og þvagi

hann skreið upp brattann

með steininn, svo datt hann

svei mér þá … var gæinn ekki í lagi?

 

hvaðan kom honum allur þessi kraftur

að rogast upp brattann

með stein skrattann

til þess eins að detta niður aftur ...

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Halldór Carlsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband