HOMO CONSUMUS
sysifuss var ekki af því tagi
sem tíminn kastar af sér eins og þvagi
hann skreið upp brattann
með steininn, svo datt hann
svei mér þá var gæinn ekki í lagi?
hvaðan kom honum allur þessi kraftur
að rogast upp brattann
með stein skrattann
til þess eins að detta niður aftur ...